Ég fæ mikla leið á bloggskrifurum....

þegar ég les blogg frá fólki sem telur sig geta fordæmt eða úthúðað þessum mótmælum. Ég hef sjálfur ekki mætt á nein mótmæli en hef ég þá litlu afsökun að búa úti á landi. Á þessum tímum hefur fólk rétt á því að koma sínum skoðunum á framfæri og ef það telur þetta vera eina leiðin þá verður það svo að vera. Ég skil þetta fólk vel, miklar hörmungar hafa dunið á íslensku þjóðinni en engin virðist geta stigið fram og sagt í alvöru hvað gerðist eða hverjir eru í raun ábyrgir. Þeir sem maður telur að beri ábyrgð hafa stigið fram og sagt að þetta sé allt öðrum að kenna. Svo sitja nær allir enn í sínum sætum og telja sig ekki þurfa að víkja, þeir halda áfram að gera sömu mistök og fyrir hrunið og það verður þetta unga fólk sem mótmælir háværast núna sem verður að borga fyrir þessi mistök.

Ég er reiður eins og þetta unga fólk og ég býst við að það séu fleiri þarna úti sem deila minni reiði. Ég er einn af þessum heppnu sem enn hafa vinnu og geta borgað sínar skuldir og keypt nauðsynjavörur. Þetta gerir það líklega að verkum að reiði mín útaf þessu bankahruni er ekki meira en svo að ég læt duga að blogga um þetta. Ef ég myndi missa mína vinnu þá er öruggt að eg gæti ekki borgað mínar skuldir og keypt nauðsynjavörur, ég yrði líklega fremstur í flokki í þessum mótmælum þar af leiðandi. Því tel ég að margir þeir sem setja sig á háan hest og kalla þessi mótmæli skrílslæti eða þaðan verra er fólk eins og ég sem enn geta borgað sínar skuldir og skilja ekki hvað örvænting er. 


mbl.is Vilja ríkisstjórnina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona að þetta sé rétta leiðin.

Ef þessi aðgerð mun styrkja krónuna og koma á eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum þá er líklega hægt að réttlæta hana. Það sem vekur efa er mikil gagnrýni á þessa aðgerð meðal hagfræðinga og viðskiptamanna, einnig það að ríkisstjórnin hefur ekki mikið traust hjá mér til að leysa þessi mál. Vona samt að þetta bæti hlutina.
mbl.is Nýjar gjaldeyrisreglur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB kerfisrugl

Þetta sýnir nú en betur hverskonar skrifinnskurugl er í gangi hjá ESB. Ætlum við Íslendingar svo að ganga í samtök sem hafa bannað bognar gúrkur? Þeir hafa reyndar aflétt banninu en þetta segir mér að það hljóta að vera fullt af öðrum fáránlegum reglum í þessu skrifinnskubullukerfi sem ég hef engan áhuga að fylgja.
mbl.is Aflétta banni við bognum gúrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrja aftur að blogga

Ég ætlaði mér aldrei að halda áfram að blogga og hef verið í góðu fríi en núna þegar ástandið er orðið svona slæmt þá verð ég að tjá mig. Ég get ekki hamið reiði mína og tel að besta leiðin til að tjá hana sé hér á blogginu.

Er þetta ekki orðið nóg!!!

Eftir að hafa fylgst með þróun mála í átökum Ísraela og Palestínumanna í öll þessi ár þá er maður hættur að skilja hvað sé í gangi. Einn daginn er talað um samstarf Ísraela og Palestínumann og hinn daginn er rætt um helför. Mér finnst reyndar ótrúlegt að Ísraelar skuli nota þetta orð, sérstaklega miðað við sögu gyðinga.

Annað sem stingur mig mikið í þessum átökum er virðingarleysi og metingur á mannslífum. Ef einn Ísraelskur borgari deyr í hryðjuverkum þá er það sjálfsagt að 10-20 Palestínumenn deyi í hefndarskyni. Það að palestínsk börn skuli deyja í loftárásum er talið vera fórnarkostnaður í þessu nær einhliða stríði sem engir kippir sér við lengur. Ég er alveg hættur að skilja þetta.


mbl.is Ísraelar hóta Palestínumönnum helför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr í bloggheiminum

Sælir þeir sem lesa þetta.

Ég er nýr í þessum bloggheimi og taldi það tímabært að koma skoðunum mínum á framfæri. Að sjálfsögðu verða ekki allir sammála því sem ég segi en það er þeirra vandamál.


Um bloggið

Sagan endalausa

Höfundur

Hinki
Hinki
Tel þörf á skoðunum mínum í bloggheiminum og ég hef skoðun á öllu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband