9.12.2008 | 18:14
Ég fæ mikla leið á bloggskrifurum....
þegar ég les blogg frá fólki sem telur sig geta fordæmt eða úthúðað þessum mótmælum. Ég hef sjálfur ekki mætt á nein mótmæli en hef ég þá litlu afsökun að búa úti á landi. Á þessum tímum hefur fólk rétt á því að koma sínum skoðunum á framfæri og ef það telur þetta vera eina leiðin þá verður það svo að vera. Ég skil þetta fólk vel, miklar hörmungar hafa dunið á íslensku þjóðinni en engin virðist geta stigið fram og sagt í alvöru hvað gerðist eða hverjir eru í raun ábyrgir. Þeir sem maður telur að beri ábyrgð hafa stigið fram og sagt að þetta sé allt öðrum að kenna. Svo sitja nær allir enn í sínum sætum og telja sig ekki þurfa að víkja, þeir halda áfram að gera sömu mistök og fyrir hrunið og það verður þetta unga fólk sem mótmælir háværast núna sem verður að borga fyrir þessi mistök.
Ég er reiður eins og þetta unga fólk og ég býst við að það séu fleiri þarna úti sem deila minni reiði. Ég er einn af þessum heppnu sem enn hafa vinnu og geta borgað sínar skuldir og keypt nauðsynjavörur. Þetta gerir það líklega að verkum að reiði mín útaf þessu bankahruni er ekki meira en svo að ég læt duga að blogga um þetta. Ef ég myndi missa mína vinnu þá er öruggt að eg gæti ekki borgað mínar skuldir og keypt nauðsynjavörur, ég yrði líklega fremstur í flokki í þessum mótmælum þar af leiðandi. Því tel ég að margir þeir sem setja sig á háan hest og kalla þessi mótmæli skrílslæti eða þaðan verra er fólk eins og ég sem enn geta borgað sínar skuldir og skilja ekki hvað örvænting er.
Vilja ríkisstjórnina burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.11.2008 | 09:37
En er hún elst ef hún er dáin???
Elsta kona heims látin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.11.2008 | 09:31
Vona að þetta sé rétta leiðin.
Nýjar gjaldeyrisreglur í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2008 | 10:04
ESB kerfisrugl
Aflétta banni við bognum gúrkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.11.2008 | 20:30
Byrja aftur að blogga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.2.2008 | 16:16
Er þetta ekki orðið nóg!!!
Eftir að hafa fylgst með þróun mála í átökum Ísraela og Palestínumanna í öll þessi ár þá er maður hættur að skilja hvað sé í gangi. Einn daginn er talað um samstarf Ísraela og Palestínumann og hinn daginn er rætt um helför. Mér finnst reyndar ótrúlegt að Ísraelar skuli nota þetta orð, sérstaklega miðað við sögu gyðinga.
Annað sem stingur mig mikið í þessum átökum er virðingarleysi og metingur á mannslífum. Ef einn Ísraelskur borgari deyr í hryðjuverkum þá er það sjálfsagt að 10-20 Palestínumenn deyi í hefndarskyni. Það að palestínsk börn skuli deyja í loftárásum er talið vera fórnarkostnaður í þessu nær einhliða stríði sem engir kippir sér við lengur. Ég er alveg hættur að skilja þetta.
Ísraelar hóta Palestínumönnum helför | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2008 | 17:44
Nýr í bloggheiminum
Sælir þeir sem lesa þetta.
Ég er nýr í þessum bloggheimi og taldi það tímabært að koma skoðunum mínum á framfæri. Að sjálfsögðu verða ekki allir sammála því sem ég segi en það er þeirra vandamál.
Bloggar | Breytt 25.1.2008 kl. 04:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sagan endalausa
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar